Gloría loksins komin heim
26.12.2010 | 22:21
Þá er Gloría loksins komin aftur heim til okkar eftir pössun í Danmörku og einangrun á Íslandi. Hún kom úr einangruninni viku fyrir jól og það má því segja að það hafi verið besta jólagjöfin okkar að fá hana aftur.
Hún hefur stækkað mjög mikið og er núna orðin 40 kg og um 70cm há upp á hrygginn. Hún var mjög fljót að venjast heimilinu og fylgir okkur hvert fótmál. Alltaf jafn ljúf og góð, róleg og yfirveguð.
Henni finnst mjög gaman að vera úti þar sem hún getur hlaupið frjáls og leikið sér. Hún er mjög hlýðin og það er auðvelt að kenna henni. Þegar við förum með hana út, t.d. útí bíl þá eltir hún okkur og stekkur svo uppí bílinn. Það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að hún hlaupi eitthvað í burtu. Henni finnst mjög gaman í bíl og vill helst fara með okkur þegar við förum eitthvað.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.